Lestin

Sigvaldi, strumpar og Mos Def

Hið Íslenska bókmenntafélag gaf nýlega út glæsilegt yfirlitsrit yfir verk Sigvalda Thordarson arkitekt. Albína Thordarson, arkitekt og dóttir Sigvalda, skrifaði bókina eftir hafa safnað upplýsingum um verk föður síns um árabil en Pétur H. Ármannsson ritar aðfararorð og kafla um mótunarár arkitektsins. Líkt og flestar bækur um arkítektúr inniheldur hún mikinn fjölda teikninga og ljósmynda en þar er líka farið yfir ævi Sigvalda, sem fæddist árið 1911 en varð aðeins 52 ára gamall. Albína segir okkur frá bókinni og ræðir einnig arkítektúr nútímans.

Bandaríski rappparinn Yasin Bey, sem er þó betur þekktur sem Mos Def, er á leiðinni til Íslands þar sem hann leikur á tónleikum í næstu viku. Mos Def sló fyrst í gegn um miðjan tíunda áratuginn, en nýtur mikillar virðingar í hip-hop heiminum. Davíð Roach ætlar rifja upp feril kappans, en nýtilkomið flóð amerískra gullaldarrappara til landsins kveikir þó einnig tilvistarlegar pælingar um tímann og aldurinn.

Og við ætlum líka heyra um 30 ára gamlan geisladisk, Strumpastuð, sem var einn allra vinsælasti á íslandi árið 1996 og er loksins komin á Spotify. Jónatan Garðarson gaf diskinn út á sínum tíma og greinir frá tilurð hans.

Birt

3. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,