Bottarnir sprengdir, Widows bay, Gervigreind til góðs
Sjónvarpsþættirnir Widows Bay fjalla um illa vætti sem ásækja heimamenn og túrista í samnefndum smábæ. Þetta er grín-hryllingur sem hefur sankað að sér verðlaunum að undanförnu. Brynja…
Viðfangsefni þáttarins er nýtt sænskt sjónvarpsdrama sem nefnist Hundarnir. Þættirnir sem hafa fengið glimrandi dóma og gríðarlegt áhorf í heimalandinu fjalla um starfsfólk á lögmannsstofunni Matsson og Moradi í Stokkhólmi sem sérhæfa sig í að verja harðsvíraða glæpamenn. Þarna er tekist á við gengjamenningu í svíþjóð þar sem ungmenni og börn eru notuð til voðaverka, þarna er tekist á við metoo, jafnvægi vinnu og einkalífs og meltingarvandræði.
Við spjöllum við Vigdísi Häsler lögfræðing um þættina.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.