Lestin

Nútímahernaður, Hildur, Persneskar kvikmyndir

Við veltum fyrir okkur hernaði í nútímanum eins og hann birtist í stríðinu í Íran um þessar mundir: drónar, gervigreind, og árásir á gagnaver, koma meðal annars við sögu. Við ræðum við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing.

Og talandi um Íran. Persar er gríðarlega mögnuð kvikmyndaþjóð og Kolbeinn Rastrick ætlar rekja sögu persneskrar kvikmyndagerðar og segja frá þeirri írönsku mynd sem er í sérstöku uppáhaldi hjá honum: Nóttin þegar það rigndi, frá 1967, eftir Kamran Shirdel.

Við rýnum svo í sjónvarpsþættina Hildur á Sjónvarpi Simans. Þetta eru sakamálaþættir byggðir á skáldsögum Satu Rämö, með Ebbu Katrínu Finnsdóttur í hlutverki ísfirsku brimbrettalöggunnar Hildar. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi segir frá.

Birt

10. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,