Lestin

Valur Ingimundarson um fasisma (endurflutningur)

Í þætti dagsins endurflytjum við viðtal frá því í byrjun nóvember um valdboðshyggju og fasisma. Það eru ýmsar blikur á lofti varðandi stöðu lýðræðisins á Vesturlöndum. Leiðtogar sem tala gegn og grafa undan ýmsum stofnunum hefðbundins frjálslynds lýðræðis eiga upp á pallborðið í dag, bæði í Evrópu og auðvitað Bandaríkjunum.

Í þættinum er rætt við Val Ingimyndarson, prófessor í sagnfræði. Hann þekkir vel til sögu fasismans, nasismans og þeirrar valdboðshyggju sem varð til fyrir um hundrað árum. Við pælum í stöðunni í dag og speglum í sögunni. Er fasisminn snúa aftur? Hvað er eiginlega fasismi? Er þetta gamla hugtak kannski bara fyrir okkur þegar við reynum skilja and-lýðræðislega strauma og valdboðshyggju í stjórnmálum nútímans.

Frumflutt

26. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,