Gráðugir algóritmar, vinnustofuheimsókn og einkarými
Í New York hefur sendlafyrirtækið DoorDash gert sátt við borgaryfirvöld eftir að upp komst að sendlar á þeirra vegum hafi ekki fengið greitt sem skyldi vegna algrímis sem sumir segja…
Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, segir frá þáttunum Reality Check, sem fjalla um raunveruleikaþættina America's Next Top Model. Þeir hófu göngu sína árið 2003 og í þeim kepptust ungar konur um að verða næsta ofurfyrirsæta Bandaríkjanna. En það var ýmislegt misjafnt sem gekk á.
Gísli Marteinn Baldursson kemur og ræðir Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrri undankeppnin fer fram í Vín í kvöld. Ísland er ekki með og er eitt fimm landa sem sniðganga keppnina vegna þátttöku Ísraels í henni. Við ræðum líka nýja þætti hans sem eru á dagskrá rásar 1, Pólitískar vindvélar Evrópu.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.