Lestin

Fall hjónabandsins, siðfræði fjallgarða, tónleikabrölt

Við rennum yfir helstu sigurvegara á Óskarnum og svo beinum við sjónum okkar verðlaunahafanum í flokkinum besta handrit. Það er franska kvikmyndin Anatomy of a Fall, Anatomie d'une chute eða Fallið er hátt. Við veltum fyrir okkur hjónaböndum og kynjajafnrétti, valdi og réttarhöldum og gluggum af tilefni í bókina Communion: The Female Search for Love eftir bell hooks.

Guðrún Úlfardóttir er landvörður og landfræðinemi og þekkir vel siðfræði fjallgarða. Við fáum heyra um líkin á Everest og mannætur.

Það hefur verið vísir vori í lofti í Reykjavík síðustu daga, dagarnir lengri, bjartari og örlítið hlýrri - og það sama segja um tónleikalíf borgarinnar, helgin sem leið var alla vega mjög viðburðarík. Bjarni Daníel þó nokkuð af hljómsveitum hér og þar í bænum á föstudaginn var.

Frumflutt

11. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,