• 00:03:34Rapptextar og lögfræði
  • 00:20:11Þjóðarpúls Lóu: Skammdegið
  • 00:37:01Nýja lagið frá Björk og Rosaliu
  • 00:44:53Sungið á ensku

Lestin

Þjóðarpúls Lóu, rapptextar sem sönnunargögn, sungið á ísl-ensku

Það er dimmt og það er ömurlegt veður. Það er kominn vetur og skammdegi. Lóa fer í Smáralindina og tekur púlsinn á þjóðinni. Er þunglyndið hellast yfir fólk, eða er það bara farið hlakka til jólanna?

Í dómssal í Atlanta í Georgíuríki Bandaríkjanna er réttað yfir einum þekktasta rappara heims. 31 árs grammíverðlaunahafanum og íslandsvininum Yung Thug. Hann er kærður fyrir standa fyrir skipulagðri glæpastarfsemi í glæpagenginu Young Slime Life. Rapparinn á hafa notað metsölutónlist sína, útgáfufyrirtæki og samfélagsmiðla til auglýsa gengið - sem er sakað um ótal glæpi, meðal annars þjófnað, ofbeldi, skotárásir, morð. er tekist á hvort og þá hvernig megi nota textabrot úr lögum rapparans sem sönnunargögn í málinu. Við pælum í rapplögum og lögfræði.

Sævar Andri Sigurðarson veltir fyrir sér af hverju við Íslendingar, sem skiljum og elskum tala ensku, sækjumst ennþá frekar í tónlist á íslensku frekar en ensku. Af hverju listamenn sem notast við íslensku snerta frekar við hjartastrengjum almennings.

Við spilum svo nýja and-sjókvíaeldisins frá Björk og Rosaliu.

Frumflutt

22. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,