Lestin

Jeff Bezos á Met Gala, Ægir Sindri skilyrtur af reynslu

Ellen Loftsdóttir, stílisti, ræðir við okkur um það sem hefur lengi verið hápunktur tískuársins, frá því Anna Wintour tók við skipulagninu á tíunda áratugnum. Fyrsta mánudaginn í Maí kemur ríka og fræga fólkið saman, klæðir sig upp og safnar fyrir búningadeild Metropolitan safnsins í New York. En viðvera og fjárhagslegur stuðningur tæknimilljarðamæringsins Jeff Bezos varpaði skugga á viðburðinn í ár.

Ægir Sindri Bjarnason, trommari og tilranatónlistarmaður, gaf á dögunum út sína tíundu sólóplötu, ‘conditioned by experience’, skeytir hún saman áhrifum úr tveimur heimum sem Ægir hefur lifað og hrærst í um árabil; harðkjarnapönkinu og þungarokkinu sem hann ólst upp í og svo tilraunatónlistinni sem hann hefur fengist við undanfarin ár, bæði sem einyrki og með öðrum.

Birt

5. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,