• 00:01:30Rýnt í úrslitakvöld Músíktilrauna 2024
  • 00:11:02Rætt við sigursveitina Vampíru
  • 00:26:15...and Björk, of course

Lestin

Vampírur á Músíktilraunum og Björk, að sjálfsögðu

á laugardaginn var íslenska leikritið And Björk of course sýnt í síðasta skipti í Samkomuhúsinu á Akureyri, minnsta kosti í bili. Næst á dagskrá er setja verkið upp í Borgarleikhúsinu, eftir Páska. Verkið er skrifað af Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi, leikskáldi og myndlistarmanni, frumsýnt árið 2001 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. 2004 kom út sjónvarpsmynd, þá var leikstjórn í höndum Lárusar Ýmis Óskarssonar. Og er verkið í höndum leikstjórans Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Rúm tuttugu ár eru liðin, hvað hefur breyst? Við ræðum sértrúarsöfnuði og ákallið í verkinu við leikstjórann Grétu og leikkonuna Maríu Hebu Þorkelsdóttur sem fer með hlutverk Ástu í verkinu.

En við byrjum í Hörpu.

Það var margt um dýrðir í Norðurljósasal Hörpu síðastlðið laugardagskvöld á Úrslitakvöldi Músíktilrauna, sem haldnar voru í fertugasta sinn í ár, fjörutíu og tveimur árum eftir þessi merka hátíð var fyrst sett á laggirnar 1982. Sigurhljómsveitin í ár heitir Vampíra, og leikur nístingskaldan, gotneskan svartmálm.

Frumflutt

18. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,