Lestin

Gervigreindartónlist á vinsældarlistum, Stólafyrirtækið, andlitsmálaður afi

Flest fólk er hætt greina á milli gervigreindarsmíðaðrar og manngerðrar tónlistar. Gervigreindarlög klýfa stöðugt hærra upp vinsældalista og gervilistamenn samninga við stór plötufyrirtæki. Við skoðum nokkur af þeim gervigreindarlögum sem hafa náð hátt á vinsældalista í Evrópu og Ameríku undanfarið.

Við rýnum í gamantryllinn The Chair Company frá HBO. Það er grínistinn Tim Robinson sem skrifar þættina og leikur aðalhlutverkið, mann sem fer í örvæntingarfulla leit aðstandendum dularfulls stólafyrirtækis sem ber ábyrgð á vandræðalegu stólaslysi sem hann lenti í. Brynja Hjálmsdóttir segir frá.

lokum hittum við myndlistarkonuna Kristínu Helgu Ríkharðsdóttur á Gerðarsafni, hún er í hópi listamanna sem taka þátt í sýningunni Skúlptúr skúlptúr performans. Hennar verk á sýningunni eru ljósmyndir af afa hennar Boga, sem hún andlitsmálaði, í anda þeirrar andlitsmálningar sem er í boði fyrir börn á 17. júní.

Frumflutt

19. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,