• 00:01:01Toves værelse
  • 00:24:21Rappstyrjöld er hafin
  • 00:36:45Juno Paul

Lestin

Herbergið hennar Tove, rappstyrjöld, Juno Paul

Juno Paul er listamannsnafn tónlitstarmannsins Andra Franz Baldvinssonar, sem skaust fram á sjónarsviðið á síðasta ári. Andri hefur verið áberandi í reykvísku grasrótarsenunni undanfarið, og styttist í útgáfu á hans fyrstu plötu.

Það standa yfir miklar deilur í rappheimum vestanhafs þessa stundina, en Kendrick Lamar og Drake hafa meðal annars átt í útistöðum upp á síðkastið. Þeir hafa gripið til þess kveðast á, komið skotum hvor á annan með grimmilegum níðvísum, diss-lögum. Sævar Andri Sigurðarson fer yfir stöðuna og segir frá sögu diss-lagsins.

Þórdís Gísladóttir, rithöfundur og þýðandi hefur þýtt tvær bækur eftir danska höfundin Tove Ditlevsen. Um þessar myndir er í sýningu myndin Tove's værelse, í Bíó Paradís, þrúgandi stofudrama byggt á bók eftir Tove. Við ræðum myndina og líf þessarar merkilegu skáldkonu.

Frumflutt

18. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,