• 00:03:49Stirnir
  • 00:18:31Tjaldbúðir á Austurvelli
  • 00:29:16Lífin sem íslendingar hafa á samviskunni

Lestin

Stirnir, tjaldbúðirnar, lífin sem Íslendingar hafa á samviskunni

Stirnir Kjartansson hefur verið virkur í íslensku indí-senunni undanfarin ár. Hann er meðlimur í nokkrum fjölda hljómsveita, meðal annars Trailer Todd en gefur einnig út tónlist undir eigin nafni. Sóló-plötur Stirnis eru fjórar talsins og hafa aðallega komið út á bandcamp en nýjasta platan hans nefnist Apple pie and <3 the razor.

Við höldum áfram kynnast mótmælendum frá Palestínu sem dvelja um þessar mundir í tjaldbúðum beint á móti Alþingishúsinu við Austurvöll í svokölluðum kyrrsetumótmælum og krefjast þess fjölskyldumeðlimum þeirra, sem enn eru á Gaza, verði veitt hæli á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

Í kjölfarið heyrum við fyrsta þátt í örseríu Önnu Marsibil Clausen, Á samviskunni, sem var fyrst flutt hér í Lestinni í upphafi 2022 - serían fjallar um þann fjölda fólks á flótta frá Þýskalandi í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar sem reyndi sækja um hæli á Íslandi en fékk iðulega neitun.

Lagalisti:

stirnir - yureioskdcvnbvcxsodifhdnsdkcmv

stirnir - I Don't Know If I'm Gonna Get It Right

stirnir - the brick wall

Trailer Todd - ég vil ekki

stirnir - Skjálfhent

stirnir - fucales

Riad Awwad, Hanan Awwad and Mahmoud Darwish - Palestinian

Riad Awwad, Hanan Awwad and Mahmoud Darwish - Intifada

Frumflutt

3. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,