Lestin

Íransstríðið breiðist út

Við erum á tólfta degi stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran, og átökin hafa breiðst víða út um Miðausturlönd. Samkvæmt nýjustu tölum hafa 1300 fallið í Íran, 570 manns verið drepnir í Líbanon, 7 bandarískir hermenn látis, 11 ísraelar og 17 manns í ríkjunum við Persaflóa.

Gestur Lestarinnar er Magnús Þorkell Bernharðsson sem er prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams háskóla í Bandaríkjunum.

Magnús flytur hátíðarfyrirlesturinn á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands á föstudag: Hvað og hvað ekki? Akademískt frelsi á tímamótum. Á laugardag heldur hann svo fyrirlestur um stöðuna í miðausturlöndum í Bókabúð Forlagsins. Þar er yfirskriftin Átök í miðausturlöndum - er þriðja heimsstyrjöldin í vændum?

Hvort tveggja góðar og mikilvægar spurningar sem við snertum á í þætti dagsins.

Birt

11. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,