• 00:01:34Af hverju er Ísland svona fátækt?
  • 00:19:35Kanema: Sjáumst og heyrumst
  • 00:32:06Poor Things

Lestin

Skoska bókin Poor Things, sjáumst og heyrumst, af hverju er Ísland svona fátækt?

Fyrir helgi opnaði sýning í Nýlistasafninu, sem ber titilinn Af hverju er Ísland svona fátækt? Í sýningunni er nýjum verkum Sæmundar Þórs Helgasonar stillt upp í samtali við valin verk úr safneign safnsins og einlægum spurning um fátækt á Íslandi velt upp.

Kanema Mashinkila er nýr pistlahöfundur í Lestinni og í dag flytur hún okkur sinn fyrsta pistil úr nýrri seríu, Sjáumst og heyrumst, þar sem hún veltir fyrir sér birtingarmyndum í sviðslistum.

Og úr leikhúsinu færum við okkur yfir í bíó og bókmenntir. Á dögunum fór Poor Things í leikstjórn Yorgos Lanthimos í sýningu í íslenskum bíóhúsum. En baki myndinni liggur frábær bók, frá árinu 1992, eftir skoska höfundinn Alisdair Gray. Ingibjörg Ágústsdóttir, dósent í breskum bókmenntum 19. og 20. aldarinnar hitti Gray út í Glasgow á sínum tíma. Við spjöllum við hana um muninn á bókinni og bíómyndinni.

Frumflutt

24. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,