Lestin

Ástin FYRIR tíma Tinder og Chet Baker

Í nokkrar vikur hefur Lóa verið ræða við fólk um ástina og ástarleit á stafrænum tímum, í innslögunum ástin á tímum Tinder. En hver voru lögmál ástarinnar í kringum aldarmótin 1900. Sigriður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur, skrifaði bókina Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi sem er miklu leiti byggð á bréfaskriftum Thoru Friðriksson (1866 1958) til systur sinnar. Systirin Ida var gift og átti börn en Thora var yngsta systirin og hafði það hlutverk annast aldraða foreldra sína, sem var algengt hlutskipti yngstu systra. Hennar draumar og þrár urðu víkja fyrir hag stórfjölskyldunnar. Sigríður er gestur í 8. þætti af Ástinni á tímum Tinder, sem við gætum kallað Ástin fyrir tíma Tinder.

Svo pælum við í tónlist og tímanum. Bjarni Daníel færir okkur innslag þar sem um eitt þekktasta lag bandaríska trompetleikarans og djassöngvarans Chet Baker og hvernig það hefur haft mótandi áhrif hann á þremur ólíkum augnablikum á ævinni.

Og svo rifjum við upp goðsagnakennda tónleika Chets Baker í Reykjavík árið 1985. Við heyrum brot úr gömlum þætti eftir Vernharð Linnet þar sem hann ræðir við einn skipuleggjanda tónleikanna, Jónatan Garðarsson, og hljóðfæraleikarana þrjá sem léku með Baker: Kristján Magnússon, Svein Óla Jónsson og Tómas R. Einarsson.

Birt

20. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,