Lestin

Golden popplagakrufning, draumráðningar fyrir nasista, Trump-Kennedy gervisíða

Við ætlum kryfja eitt vinsælasta popplag síðasta árs, sem var á dögunum tilnefnt til Óskarsverðlaunanna sem besta lagið í kvikmynd. Tónlistarmaðurinn og poppmeinafræðingur Lestarinnar Friðrik Margrétar Guðmundsson rýnir með okkur í Golden sem kemur fyrir í vinsælu Netflix-teiknimyndinni Kpop Demon Hunters.

á dögunum var haldin ráðstefna gegn gyðingahatri í Ísrael. Þangað var boðið helstu forkólfum hægristjórnmála í Evrópu, meðal annars meðlimum í flokkum sem eiga rætur sínar rekja til nasismans. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl fjallar um einkennilegar draumfarir eins þessara stjórnmálamanna, Svíþjóðardemókratanum Jimmie Åkesson.

Í kvöld verður heimildarmyndin Melania, sem fjallar um forsetafrú Bandaríkjanna Melania Trump, frumsýnd í menningarmiðstöðinni sem áður hét Kennedy Center, í Washington DC. Við förum yfir umdeilda nafnabreytingu og gabbvefsíðu stofnunarinnar.

Frumflutt

29. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,