Lestin

Platmótmæli, Ethel Cain, bíómyndin sem er gerð aftur og aftur og aftur

Þegar myndir á öðrum tungumálum en ensku þykja vel heppnaðar er gjarnan farið í það endurgera myndina á ensku í Hollywood. Ítalska kvikmyndin Perfetti sconosciuti sem kom út árið 2016 hefur hins vegar farið allt aðra leið, á aðeins sex árum hefur hún verið endurgerð á tugum tungumála og er orðin mest endurgerða mynd kvikmyndasögunnar. Eftir áramót verður frumsýnd íslensk endurgerð myndarinnar og nefnist hún Villibráð. Við endurflytjum viðtal við leikstjórann Elsu Maríu Jakobsdóttur og Tyrfing Tyrfingsson sem skrifa handritið.

Ásdís Sól Ágústsdóttir rýnir í texta á nýrri plötu tónlistarkonunnar Ethel Cain, Preachers daughter.

Salvör Gullbrá flytur hugleiðingu um mótmælaaðgerðir sem eru plat, í tengslum við HM í Katar og tómatsúpugjörning samtakanna Just Stop Oil.

Frumflutt

23. nóv. 2022

Aðgengilegt til

24. nóv. 2023
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags. Hér heyra úrval þátta hverrar viku.

,