• 00:00:20Lesskilningur
  • 00:10:17Fæðingarheimili Reykjavíkur opnað á ný
  • 00:18:06Orkuskiptin

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Lestrarkennsla, fæðingarheimili, upplýsingavefur um orkuskipti

Ilmur Kristjánsdóttir leikkona birti í fyrradag færslu á Facebook þar sem hún gagnrýndi ofuráherslu á leshraða fremur en lesskilning í lestrarkennslu. Óhætt er að segja að færslan hafi vakið mikla athygli og margir foreldrar tekið undir með henni. Hermundur Sigmundsson er prófessor við norska tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi og við rannsóknarsetrið Menntun og hugarfar við Háskóla Íslands. Hann er einn af þeim sem standa að þróunar- og rannsóknarverkefnin Kveikjum neistann í Grunnskólanum í Vestmannaeyjum og vill innleiðar aðrar áherslur í kennslu. Hermundur ræddi við Kastljós.

Fæðingarheimili Reykjavíkur hefur verið opnað á ný en ljósmæðurnar sem standa að Fæðingarheimilinu vilja meðal annars bæta fæðingarþjónustu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Kastljós fór í heimsókn.

Nýr upplýsingavefur - orkuskipti.is - var opnaður í dag en á honum má finna upplýsingar um orkunotkun, orkuskipti og efnahagslegan ávinning Íslands af orkuskiptum. Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, sem stendur að vefnum ásamt Landsvirkjun, Samorku og Eflu, fór yfir vefinn.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,