• 00:00:51Flóttamenn á Íslandi
  • 00:10:42Einelti í skólum - ungmenni tjá sig
  • 00:16:42Kirkjufell
  • 00:22:22Skrekkur

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Flóttamenn á Íslandi, einelti í skólum, Kirkjufell, Skrekkur

Stjórna tilfinningar fremur en staðreyndir umræðunni um flóttafólk á Íslandi? Þetta var á meðal þess sem rætt var á málþingi í Háskóla Íslands í dag undir yfirskriftinni Er Ísland að drukkna í flóttamönnum? Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands fór yfir löggjöfina á Íslandi í samanburði við önnur lönd.

Einelti og ofbeldi meðal ungmenna hefur verið ofarlega á baugi í samfélagsumræðunni að undanförnu. Í Varmárskóla er unnið að verkefni í samstarfi við Fjölbrautaskólann í Mosfellsbæ þar sem framhaldsskólanemar leiða vinnustofur um einelti með nemendum í 5. og 6. bekk. Markmiðið er að fá þau til að skilgreina einelti, ræða viðbrögð og hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir það.

Kirkjufell í Grundarfirði er einn vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna á hér á landi. En eftir þrjú banaslys á undanförnum fjórum árum hafa landeigendur hins vegar ákveðið að banna göngur á fjallið að vetrarlagi, frá og með deginum í dag. Rætt var við Jóhannes Þorvarðarson, einn landeiganda.

Undanúrslit Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík fara fram í þessari viku en úrslitin verða næstkomandi mánudag og verður hægt að fylgjast með þeim í beinni útsendingu á vef RÚV. Í kvöld verður hins vegar sýnd heimildamynd um þátttöku Laugalækjarskóla í Skrekk í fyrra sem var unnin af fjórum vinum sem tóku þátt.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,