• 00:07:09Andrej Kúrkov, handhafi verðlauna Halldórs Laxness

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Staða dagforeldra, Andrej Kúrkov - handhafi verðlauna Halldórs Laxness

Fjöldi foreldra í Reykjavík bíður nú eftir leikskólaplássi. Reykjavíkurborg boðaði aðgerðir í leikskólamálum í ágúst þar sem meðal annars var kveðið á um að hækka niðurgreiðslur til dagforeldra? En hver er staðan þar á bæ? Rúmlega 80 dagforeldrar eru starfandi í Reykjavík og hefur farið fækkandi. Halldóra Björk Þórarinsdóttir, formaður Barnsins, félags dagforeldra í Reykjavík, og Anna Steinunn Þórhallsdóttir, formaður Barnavistunar, segja í Kastljósi fækkunina meðal annars stafa af áformum Reykjavíkurborgar um að fjölga leikskólaplássum - sem hafi hins vegar ekki gengið eftir og því bætt gráu ofan á svart.

Andrej Kúrkov, þekktasti samtímahöfundur Úkraínu, hlaut Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Kúrkov er landflótta, eins og milljónir landa sinna, en hefur haldið dagbók frá því í aðdraganda innrásarinnar sem gefur áhrifaríka innsýn inn í daglegt líf Úkraínubúa á stríðstímum. Hann segir í rauninni aðeins tvo kosti í stöðunni, annað hvort verði Úkraína áfram frjáls og evrópsk eða ríki líði einfaldlega undir lok.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,