• 00:00:22Transkonur útilokaðar í sundíþróttinni
  • 00:10:35Rafíþróttir æ vinsælli

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Transkonur útilokaðar í sundíþróttinni og rafíþróttir æ vinsælli

Alþjóðasundsambandið ákvað um helgina að banna transkonum að keppa í kvennaflokki á heimsmeistaramótinu í sundi nema þær hafi farið í gegnum kynleiðréttingarferli áður en kynþroski hófst. Sambandið segir ákvörðunina gerða til þess að tryggja sanngirni, sérstaklega í kvennaflokki. Sundsamband Íslands kaus með banninu en Samtökin 78 hafa lýst vonbrigðum með ákvörðunina. Til að ræða þetta komu Tótla I Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78 og Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands.

Rafíþróttir hafa tekið miklum stakkaskiptum hér á landi á síðustu árum. Íslensk íþróttafélög halda úti rafíþróttadeildum og rafíþróttafélög þjálfa atvinnu-rafíþróttamenn sem keppa á mótum hérlendis og víða um heiminn

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,