• 00:00:20Fylgdarlaus börn frá Úkraínu
  • 00:09:02Aukinn einmanaleiki
  • 00:17:30Berdreymi

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Flóttafólk, einmannaleiki, kvikmyndin Berdreymi

Í gær bárust fréttir af því að systur frá Úkraínu hefðu þurft að flytja fimm sinnum á rúmri viku frá því að þær komu til landsins og vitað er um þó nokkur börn sem hingað hafa komið án forráðamanna. Kastljós ræddi þessi mál við Gylfa Þór Þorsteinsson sem hefur umsjón með móttöku flóttafólks frá Úkraínu.

Aukinn hraði í samfélaginu og meiri ítök tækninnar í daglegu lífi eru talin hafa aukið einmanaleika meðal fólks. Í sumum löndum hefur verið talað um faraldur einmanaleika ? og það raunar áður en kórónuveiran skall á. Á Íslandi greina fleiri frá einmanaleika nú en fyrir faraldur. Sigríður Halldórsdóttir ræddi við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra á lýðheilsusviði hjá Embætti landlæknis.

Eitruð karlmennska, vinátta og að treysta á innsæið eru rauðir þræðir í nýjustu mynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, Berdreymi, sem var frumsýnd hérlendis á föstudaginn. Chanel Björk ræddi við Guðmund og ungu aðalleikarana fjóra í Berdreymi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,