• 00:00:25Erlend kvikmyndaverkefni á Íslandi
  • 00:08:52Matarfíknin erfiðasti andstæðingurinn

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

True Detective á Íslandi, barátta við matarfíkn

Fjórða syrpa bandarísku sjónvarpsþáttanna True Detective verður dýrasta kvikmyndaverkefni sem unnið hefur verið á Íslandi. Gert er ráð fyrir að HBO eyði níu milljörðum króna í verkefnið en á rétt á endurgreiðslu af 35 prósent af framleiðslukostnaðinum. Kastljós ræddi við Leif Dagfinnsson hjá Truenorth, sem þjónustar verkefnið.

Fótboltakonan Lára Pedersen háði áralanga baráttu við matarfíkn og greinir frá henni í nýútkominni bók, Veran í moldinni. Hún tókst á við veikindin einsömul og bakvið luktar dyr og segist hafa verið uppfull af skömm og vanlíðan.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,