• 00:00:13Rammaáætlun
  • 00:13:23Emilíana Torrini á Listahátíð

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Rammaáætlun og Emilíana Torrini

Rætt var um rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, sem samþykkt var á Alþingi í gær en mikil og heit umræða hefur verið um hana í mörg ár, allt frá árinu 2016 í rauninni, þegar fyrsta tillaga þessa þriðja áfanga hennar var lögð fram á Alþingi. Alls hafa fjórir umhverfisráðherrar gert tilraun til að koma í gegnum þingið undanfarin sex ár. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar ræddu málið.

Emilíana Torrini rekur smiðshöggið á Listahátíð í Reykjavík á sunnudag með stórtónleikum í Eldborg. Þar kemur hún fram áfram belgísku hljómsveitinni The colorist Orchestra sem er eins og nafnið bendir til litrík og lífleg.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,