• 00:00:18Starfsaðstæður sveitarstjórnarmanna
  • 00:13:39Mari hljóp tæplega sjöfalt maraþon
  • 00:19:25Ljósmyndahátíð á Patreksfirði

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Aðstæður sveitarstjórnarfulltrúa, ofurhlaupari og sýning á Patró

Sex af hverjum tíu fulltrúum í sveitarstjórn hafa komið nýir inn í síðustu tvennum sveitarstjórnarkosningum, meira en helmingur segist hafa orðið fyrir áreiti og álíka margir segja greiðslur fyrir starf kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum of lágar. Þetta kom fram í rannsókn sem kynnt var á dögunum. Til að ræða þetta komu í Kastljós Guðveig Eyglóardóttir, formaður starfshóps um aðstæður kjörinna fulltrúa, sem einnig er bæjarfulltrúi í Borgarbyggð, og tveir fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúar, Friðbjörg Matthíasdóttir, í Vesturbyggð og Guðmundur Baldvin Guðmundsson, á Akureyri.

Við hittum einn mesta ofurhlaupara landsins í dag, Mari Järsk. Hún stóð uppi sem sigurvegari í Bakgarðskeppni Náttúruhlaupa um helgina, eftir að hafa hlaupið vegalengd sem samvarar hátt í 7 maraþonum, á 43 klukkustundum - alls 288 kílómetra. Við ræddum við Mari í þættinum, sem var bæði þakklát og glöð, en dálítið aum í hnjánum.

Dynjandi, nekt og sjókvíaeldi voru viðfangsefni ljósmyndara sem dvöldu nýverið á Patreksfirði og héldu þar sýningu. Kastjós gerði sér ferð vestur og ræddi við kennara þeirra, ljósmyndarann og rithöfundinn Paul Bevan.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,