• 00:00:19Stríðsglæpir í Úkraínu
  • 00:12:54Hjálpar flóttamönnum í Póllandi
  • 00:19:09Söngkeppni framhaldsskólanna

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Stríðsglæpir í Úkraínu, dansari hjálpar flóttafólki, Söngkeppnin

Flest bendir til að rússneski herinn hafi myrt að minnsta kosti hundruð borgara á hernumdum svæðum í Úkraínu á síðastliðnum vikum. Fjöldi líka hefur fundist í bænum Bútsja eftir að rússneski herinn hörfaði þaðan, sum þeirra bundin á höndum. Zelensky Úkraínuforseti segir engum blöðum að fletta að um stríðsglæpi sé að ræða og litið verði á ódæðin sem þjóðarmorð. Bergsteinn ræðir við Atla Viðar Thorstensen, sviðsstjóra á alþjóðasviði Rauða krossins, og Val Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Ásgeir Sigurvaldason, leikstjóri og dansari, fór frá Kiyv í Úkraínu í þann mund sem Rússar réðust inn í landið. Hann hefur verið við landamærin í Póllandi síðan og aðstoðað fólk á flótta, þar á meðal til að komast til Íslands. Bergsteinn ræddi við Ásgeir.

En Emilía Hugrún og skólahljómsveit Fjölbrautaskóla Suðurlands báru sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin var á Húsavík í gær. Helga Margrét og Hafsteinn fylgdust með undirbúningnum og ræddu við skipuleggjendur og sigurvegarana.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,