Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Úkraína, viðsnúningur Þýskalands, sýndarveruleiki, Gaflaraleikhúsið

Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, fundar með þingmönnum Evrópulanda í París þessa dagana um heimsfaraldur, loftslagsvá og auðvitað stríðið í Úkraínu. Bergsteinn ræddi við Bjarna.

Þýsk stjórnvöld tilkynntu á dögunum að þau ætla að breyta áratugalangri stefnu um að flytja ekki hergögn á átakasvæði með því að senda vopn og annan herbúnað til Úkraínu. Artúr Björgvin Bollason, sem búið hefur í Þýskalandi um árabil, fór yfir þessi sögulegu vatnaskil.

Nota á sýndarveruleika til að þjálfa fólk með þroskahömlun til að takast á við aðstæður í daglegu lífi sem geta reynst því erfiðar.

Það eru samtökin Þroskahjálp og Virtual Dream Foundation sem standa að verkefninu. Baldvin Þór fékk að fylgjast með því þegar sýndarveruleikinn var prófaður í fyrsta sinn.

Glænýr söngleikur fyrir alla fjölskylduna, Langelstur að eilífu, með Sigga Sigurjóns í aðalhlutverki var frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu um helgina. Árni Beinteinn leit við rétt fyrir frumsýningu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,