• 00:00:15Tekst á við erfitt krabbamein
  • 00:08:45Hvert fór athyglin?
  • 00:17:31Landsbankinn hagnast um 29 milljarða

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Einbeitingarskortur, sjaldgæft krabbamein og bankahagnaður

María Guðmundsdóttir Toney sem greindist nýlega með mjög sjaldgæft krabbamein í milta segir að það sé stundum auðvelt að hugsa: afhverju ég. Mikil vinna er nú fyrir höndum að finna meðferð sem hentar henni en hún segist ákveðin í að taka þetta með jákvæðninni og hörkunni. Kastljós ræddi við Maríu.

Fæstir myndu slá hendinni á móti aukinni einbeitingu og athygli því þetta tvennt virðist á sífelldu undanhaldi í hraða og óreiðu samtímans. Guðrún Sóley ræddi við Bjarna Kristinn Gunnarsson sálfræðing sem hefur rannsakað hegðun okkar á netinu og áhrif hennar á andlega líðan.

Hagnaður Landsbankans nam 29 milljörðum á síðasta ári og stefnir að því að greiða rúma fjórtán milljarða í arð. En hvaðan kemur þessi hagnaður og segir þetta okkur eitthvað um stöðu hinna bankanna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,