Lestin

Borgaraleg óhlýðni, leifar McDonalds og Kuldi

Borgaraleg óhlýðni er hugtak sem fór lítið fyrir fyrr en upp úr síðustu aldamótum þegar mótmælendur og aðgerðasinnar hlekkjuðu sig við vinnutæki og vélar við Kárahnjúka, eftir hrunið fór aftur bera á því og síðast þegar tvær konur klifu möstur hvalveiðiskipa og komu í veg fyrir veiðar gætu hafist. Til átta okkurbetur á hugtakinu og sögu þess sem nær allavega 170 ár aftur í tímann mæltum við okkur mót við Ólaf Pál Jónsson heimspeking.

Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar, fór á nýjan íslenskan sálfræðitrylli í bíó. Það er Kuldi í leikstjórn Erlings Thoroddsen en myndin byggir á samnefndri spennusögu Yrsu Sigurðardóttur. Þegar Óðinn fer rannsaka áratugagömul mál tengd unglingaheimili koma fram dularfull tengsl við sjálfsvíg fyrrum eiginkonu hans og undarlega hegðun táningsdóttur hans. Við heyrum rýni Kolbeins

Lestarferðinni lýkur svo á fjórða og síðasta þætti af McBlessi Ísland, örseríu Önnu Marsibilar Clausen frá 2019 um McDonalds á Íslandi. 30 ár eru síðan hamborgararisinn opnaði sitt fyrsta útibú hér á landi, 14 ár síðan það síðasta skellti í lás. En það er ekki þar með sagt sögunni ljúki endilega þar.

Frumflutt

14. sept. 2023

Aðgengilegt til

14. sept. 2024
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,