
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Hans Steinar Bjarnason upplýsingafulltrúi SOS Barnaþorpa og Eva Ruza eru nýkomin frá Suður-Eþíópíu frá borg sem heitir Arba Minch. SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna þar verkefni sem gengur út á að koma barnafjölskyldum út úr sárafátækt fylgja þeim þangað til þær standa á eigin fótum. Þau hittu tvær af þessum fjölskyldum. Hans Steinar mætti með ferðasöguna.
Í gegnum tíðina hefur verið gagnrýnt að almenningssamgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið ábótavant. Sérstaklega hefur verið rætt um að erfitt hafi verið að finna þá einu stoppustöð sem var á svæðinu og ferðatími og tíðni passi illa starfsfólki flugstöðvarinnar. Í gær kynnti Vegagerðin að umbætur hafi verið gerðar á aðkomu og aðstöðu fyrir almenningsvagna sem aka til og frá Keflavíkurflugvelli til að bæta aðgengi flugfarþega og starfsfólks að flugstöðinni. Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum, merkingar bættar og gönguleiðin að almenningsvögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Friðrikka Jóhanna Hansen er sérfræðingur á Almenningssamgangnadeild Vegagerðarinnar og er ein þeirra sem kom að þessum umbótum. Hún kom til okkar.
Bein útsending verður annað kvöld á RÚV frá söfnunar- og skemmtiþætti til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni að Reykjalundi í Mosfellsbæ. Brýn þörf mun vera á uppbyggingu og markmiðið er að senda Reykjalund í eins konar endurhæfingu. Þau Kolbrún Þorsteinsdóttir og Bárður Tryggvason, sem eru í stjórn Hollvinasamataka Reykjalundar, komu til okkar og fóru yfir stöðuna á Reykjalundi.
Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðskipta. Þetta kom fram við aðalmeðferð málsins sem hélt áfram í dag. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir fréttakona hefur flutt fréttir úr dómsal. Hún kom til okkar.
Netverslunardagurinn var haldinn í Grósku í dag en þar var meðal annars fjallað um kauphegðun Íslendinga á netinu, alþjóðlega þróun netverslunar og hvernig íslensk fyrirtæki geta undirbúið sig fyrir stærsta sölutímabil ársins sem gengur senn í garð. Við ræddum við Eymar Plédel Jónsson framkvæmdastjóra viðskiptavinasviðs Póstsins um komandi vikur og mánuði þar sem netverslun verður mikil enda nálgast Svartur föstudagur, netmánudagur og dagur einhleypra.
Nú er 1. október sem þýðir að mánuður Bleiku slaufunnar er runninn upp. Þetta er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins, sem flestir landsmenn ættu nú að kannast við. Í ár var Bleika slaufan hönnuð af parinu Tönju Levý og Jökli Jónssyni, samhliða krabbameinsmeðferð Tönju en fyrir ári greindist hún með brjóstakrabbamein. Við ræddum við Tönju og Höllu Þorvaldsdóttur framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.