Síðdegisútvarpið

Borgarstjórnarkosningar, áhugaverður dómur um séreignasparnað og glamúrinn á Cannes

Íslendingar ganga til kosninga á morgun. Síðustu oddvitaumræðurnar verða í kvöld en þá mætast frambjóðendur í höfuðborginni. Annað kvöld hefst svo kosningadagskráin á Rúv. Baldvin Þór Bergsson sagði okkur betur frá dagskránni.

Þroskahjálp hefur komið á fót sérstökum vef sem gerir kjósendum kleift sjá hve inngildandi stefnuskrá framboðanna er og hve mikil áhersla er lögð á málefni fatlaðs fólks. Þá hafa samtökin einnig sett fram stefnuskrá á vefnum sem framboðin mega stela. Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar sagði okkur betur frá þessu.

Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, segir á samfélagsmiðlum frá dómi sem féll nýlega þar sem séreignasparnaður hins látna lýtur ekki sömu lögum og aðrar eignir þegar kemur erfðarlögum. Björn Berg fór yfir málið með okkur.

Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður og samfélagsrýnir, og grínistinn Dóri DNA, kíktu til okkar og fóru yfir kosningabaráttuna hér í höfuðborginni.

Slys, rigning, óvænt úrslit og hörð barátta um bleiku treyjuna frægu maglia rosa, hafa einkennt fyrstu vikuna af ítölsku hjólreiðakeppninni Giro d’Italia. Keppnin er ein af þremur stærstu hjólreiðakeppnum heims og er þekkt fyrir erfiðar fjallaleiðir. Til veita okkur betri innsýn í þessa sögufrægu keppni kom til okkar Þorsteinn Ásgrímsson Melén, hjólreiðakappi og aðstoðarfréttastjóri á mbl.is.

Á Facebook-síðunni Vertu á verði - eftirlit með verðlagi, sem Verðlagseftirlit ASÍ heldur úti, er færsla þar sem manni nokkrum ofbauð rukkanir hjá Sorpu fyrir móttöku á sorpi. Viðkomandi hafi verið í framkvæmdum síðasta árið og farið margar ferðir í Sorpu. Hann kvartar yfir ógagnsæi í verðlaginu því hann hafi verið rukkaður mjög misjafnlega eftir hentugleika starfsmanna sem vinna þarna, honum finnst. Við spurðum Gunnar Dofra Ólafsson, sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, út í verðlagninguna.

Kvikmyndahátíðin í Cannes, 79. í röðinni hófst í vikunni. venju er mikið um glamúr og glæsimenni sem og fræga fólkið lætur sjá sig. Við hringdum til Cannes og tókum púlsinn á stemmningunni. Selma Karlsdóttir, framleiðandi, var á línunni beint frá Cannes.

Birt

15. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,