Síðdegisútvarpið

Kotra, hagnaður bankanna, bíó á Húsavík, KK og útvarp

Íslandsmótið í kotru hefst í dag og stendur út morgundaginn. Við heyrðum í Inga Tandra Traustasyni kotruspilara sem fræddi okkur um þetta vinsæla spil.

Þriggja barna fjölskylduföður í Kópavogi blöskrar hagnaður bankanna og hefur skrifað áhugaverðar pælingar á Facebook síðu sína. Hann sendi líka bréf til Nordea bank sem er staðsettur í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og víðar og hefur bréfið skilað sér til háttsetts aðila í bankanum. Íslensku bankarnir þrír skiluðu 94 þúsund miljónum í hagnað eftir hafa borgað allan kostnað við laun, húsnæði ofl. Kristján Ingi Gunnarsson er maðurinn á bak við þessar hugleiðingar og hann ræddi við okkur.

Á dögunum sáum við fréttir af því Efnisveitan hefði milligöngu um sölu á ýmsum varningi sem var finna í Sambíóunum í Álfabakka en starfsemi bíósins þar lauk nýverið. Einn þeirra sem gerði góð kaup er Örlygur Hnefill Örlygsson á Húsavík. En hvað ætlar hann gera við bíósætin? Við hringdum norður.

Kristján Kristjánsson, eða KK eins og við þekkjum hann flest, verður sjötugur 26. mars nk. og hann heldur afmælistónleika 26. og 27. mars. KK var föstudagsgestur Síðdegisútvarpsins í dag.

Alþjóðadagur útvarps er í dag og margir velta fyrir sér hvort útvarpið deyjandi miðill? Ekki segja tölur. Þau Höskuldur Sæmundsson, verkefnastjóri Alþjóðadags útvarps og Anna Marsibil Clausen, ritstjóri hlaðvarpa hjá RÚV ræddu uppáhaldsmiðilinn okkar, útvarp.

Birt

13. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,