Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Baksvið Alþingis, City í vandræðum og Bayeux-refillinn

Eitt af stóru fréttamálum vikunnar eru klárlega skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, sem varpa nýju ljósi á afsögn hans úr embætti. Það má segja að skilaboðin hafi veitt almenningi áhugaverða innsýn í innsta hring ráðherra og hvernig hlutirnir ganga stundum fyrir sig á bakvið tjöldin. Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, er einn þeirra sem hefur tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum en í færslu á Facebook segir hann að fólk trúi honum ekki þegar hann lýsi reynslu sinni af þinginu. Við ræddum við Björn Leví.

Vefsíðan The Athletic hefur eftir heimildarmönnum sínum að enska úrvalsdeildin hafi komist að niðurstöðu í áralöngu kærumáli sínu á hendur knattspyrnufélaginu Manchester City. Félagið var kært í 115 ákæruliðum og er sekt í 114 þeirra. Kærurnar á hendur City hafa verið að veltast um hjá sjálfstæðum dómstóli Úrvalsdeildarinnar frá árinu 2022 og ná flestar til brota City á fjármálareglum og ýmsum öðrum reglum á árunum 2009-2018. Einar Örn Jónsson hefur fylgst með þessum kærumálum. Hann kom til okkar.

Á morgun laugardag hefur göngu sína nýr, spennandi spurningaþáttur í sjónvarpinu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Þar munu verðugir fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Guðmundur Pálsson kíkti til okkar og sagði okkur frá Landsleikunum.

Næstu helgi fer fram myndasöguhátíðin LICAF í bænum Kendal á Norður Bretlandi. Og meðal fulltrúa Íslendinga verður myndasöguhöfundurinn og uppistandarinn Hugleikur Dagsson. Í færslu á samfélagsmiðlum sagði hann frá því að hann yrði þarna gestur og tæki þátt í pallborði þar sem tvö lið þurfa að metast um afar stórrar og krefjandi spurningu: „Hvor er betri, Tinni eða Ástríkur?“. Hugleikur óskaði eftir rökfærslum fylgjenda sinna á Facebook en hann verður Ástríks-megin í pallborðinu. Við fengum hann Hugleik í heimsókn til að segja okkur hvers vegna Ástríkur sé betri en Tinni.

Bretar flykkjast nú að Breska Þjóðminjasafninu til að skoða þar fágætan grip – hinn sögufræga Bayeux-refil (bæjö-refil), sem sýnir orrustuna við Hastings árið 1066. Hann er tæplega 70 metra langur og 50 cm breiður, og mætti jafnvel líkja við tæplega þúsund ára gamla myndasögu. Refillinn er þjóðargersemi Frakka en er núna loksins kominn til Bretlands, þar sem hann er í láni - eitthvað sem Bretar hafa beðið í næstum því hundrað ár en því hefur verið lýst sem eins konar menningarlegu eða vísindalegu afreki að hafa náð að flytja hann frá Frakklandi til Bretlands án þess að verkið hafi orðið fyrir miklu hnjaski. Hólmfríður kíkti niður í Háskóla Íslands í dag og fékk þar Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum, til að segja hlustendum nánar frá þessum merkilega refli og orrustuna sem hann sýnir.

Í lok þáttar fengum við þá Gísla Martein og Ingvar Þór til að segja okkur upp að ofan af dagskrá sinni en þeir gera upp vikuna á sínum miðlum núna um helgina, þegar Vikan með Gísla Marteini verður á dagskrá í kvöld og hins vegar Vikulokin á samtengdum rásum 1 og 2 í fyrramálið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,