Síðdegisútvarpið

Fasteignamarkaður, umferð á Keflavíkurflugvelli og EM í sundi

Oft er talað um fasteignamarkaðurinn fari í einhverskonar pásu á sumrin hvort sem það er rétt eða ekki. En hvernig líður markaðinum núna í ágúst byrjun? Hvað sjá menn í spilunum? Páll Heiðar Pálsson, fasteignasali hjá Pálsson fasteignasölu, fór yfir markaðinn með okkur.

Sólmyrkvinn mun sjást þótt dragi fyrir sólu og spáð rigningu á miðvikudaginn. Fjöldi fólks ætlar sér þó fylgjast með honum á góðum útsýnisstöðum. Einn þeirra er Reykjanesskaginn og búast við töluverðri umferð um Reykjanesbrautina á þessum tíma. En hvað þurfa flugfarþegar á leið í og úr Leifsstöð hafa í huga? Andri Ómarsson, verkefnastjóri markaðsmála hjá Keflavíkurflugvelli kom í Síðdegisútvarpið.

Þegar það er blíða þá eru það ekki bara mannfólkið sem rýkur út í sólina til sýna sig og sjá aðra. Fornbílarnir fara líka á rúntinn til sýna sig og sjá aðra. Í Reykjavík í kvöld mun félagsskapurinn Krúser, félag áhugamanna um akstur fara á rúntinn. Við hringdum í Hjálmar Hlöðversson formann félagsins sem er gera allt klárt fyrir kvöldrúntinn sem hefst uppi á Höfðabakka.

Árlegur sumarskóli Rannsóknarseturs um smáríki við Háskóla Íslands stendur yfir, en þar er sjónum beint öryggis- og varnarmálum smáríkja í Norður-Atlantshafi. Hátt í tuttugu nemendur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum taka þátt, ásamt fjölda innlendra og erlendra sérfræðinga. En hvaða áskoranir blasa við smáríkjum í síbreytilegu öryggisumhverfi? Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði kom til okkar.

Stærsta litla bæjarhátíð í heimi, eins og hún er kynnt, hefst á Reykhólum í vikunni.

Reykhóladagar hefjast á einstakri náttúruupplifun þegar almyrkvi sólar verður yfir Íslandi á miðvikudaginn. Af því tilefni verða sérstakir Sólmyrkvatónleikar í Bjarkalundi þar sem Bríet stígur á svið eftir Nói Klose hefur sett tóninn fyrir kvöldið. Embla Dögg Backmann Jóhannsdóttir kom til okkar en hún er framkvæmdarstjóri hátíðarinnar.

Evrópumótið í sundi hófst í París í morgun og stendur yfir fram á sunnudag. Tíu íslenskir sundmenn taka þátt í mótinu og keppa þar við fremstu sundmenn Evrópu. Ingi Þór Ágústsson lýsir keppninni á RÚV og hann leit til okkar í lok þáttar.

Og lok þáttar rak Bergsteinn Sigurðsson inn nefið hjá okkur en Silfrið hefur göngu sína á loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB og verða formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gestir þáttarins.

Birt

10. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,