Spænska knattspyrnustórveldið Real Madrid glímir nú við miklar innanbúðarerjur. Rifrildi á æfingum, megn óánægja stuðningsmanna með Frakkann Kylian Mbappe og slagsmál í búningsklefanum er meðal þess sem komið hefur upp síðustu vikur. Í gær tapaði liðið síðan 2-0 fyrir erkifjendunum Barcelona á útivelli, sem - til að toppa þetta allt, náði þar með að tryggja sér spænska meistaratitilinn. Eftir frammistöðu síðustu vikna og mánaða leitar Real Madrid nú logandi ljósum að nýjum knattspyrnustjóra til að leiða liðið á beinu brautina. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður kom til að segja okkur betur frá vandræðum spænska félagsins.
Kennaramenntun undirbýr nemendur ekki nægilega vel undir starfið í skólum landsins. Þetta sagði Andri Þorvarðarson framhaldsskólakennari í Síðdegisútvarpinu í síðustu viku. Gagnrýni hans rímar við niðurstöður Talis-rannsóknarinnar, en samkvæmt niðurstöðum hennar sem birtar voru á síðasta ári telja nýir kennarar að kennaramenntun undirbúi þá verr en áður. Við ræðum við Kolbrúnu Pálsdóttur, forseta menntavísindasviðs Háskóla Íslands, og Berglind Gísladóttur dósent um þessa gagnrýni.
Þrjátíu ár eru í dag frá sigri Funklistans í kosningum í nýju sameinuðu sveitarfélagi Ísafjarðarbæjar þann 11. maí 1996. Þarna voru á ferð ungir hugsjónarmenn og vakti framboðið athygli og líka einhverjar mótbárur. Það komu fram hótanir, símat og meiðyrðamál vegna greinaskrifa. Hilmar Magnússon, sem var oddviti Funklistans, ætlar að rifja upp með okkur þennan tíma.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2026 verður haldin í Vín í Austurríki dagana12, 14 og 16. maí en Austurríki vann Söngvakeppnina í fyrra með laginu Wasted Love. Þáttaka Ísraels hefur valdið áframhaldandi deilum og hafa fimm lönd ákveðið að sniðganga keppnina í ár og það eru Holland, Írland, Ísland, Slóvenía og Spánn. Við ætlum að hringja til Vínarborgar og heyra í Lindu Karen Kettler en hún starfar fyrir austurrísku sjónvarpsstöðina Servus TV sem mun senda út fréttir í tengslum við keppnina. Við ætlum að heyra í Lindu og spyrja hana út í stemninguna í þessum evrópska suðurpotti.
Verktakar vilja koma fyrir brúarstólpum Fossvogsbrúar að næturlagi til að trufla ekki flugumferð við Reykjavíkurflugvöll. Heilbrigðiseftirlit á höfuðborgarsvæðinu hafa þó áhyggjur af hávaðaónæðinu og áhrifum þess á svefn og hvíld íbúa í nágrenninu - æskilegra væri að framkvæmdin fari fram á dagvinnutíma. Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri Samgöngum, segir okkur frá stöðu framkvæmdanna.
Þórdís Ólöf Jónsdóttir sigraði Bakgarðshlaupið í Öskjuhlíð um helgina eftir að hafa hlaupið 44 hringi (hver hringur er 6,7 km) áður en keppninni lauk snemma í morgun. Þórdís lagði tæplega 295 kílómetrar að baki á tveimur sólarhringum á hlaupum Við ætlum að ræða við Þórdísi um afrekið, þreytuna og allt sem þessu tengist.