Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Sigvaldi Thordarson, Celine Dion, Gulli byggir, útfösun 2G og 3G og stór fótboltahelgi fram undan

Kanadíska söngdívan Celine Dion hefur tekið yfir Parísarborg þessa vikuna en hún hélt sína fyrstu tónleika í sex ár þar í borg á mánudagskvöldið. Dion hefur haldið sig að mestu fjarri sviðsljósinu síðustu ár eftir að hún var greind með sjaldgæfa taugaröskun árið 2022 sem á ensku kallast Stiff person Syndrome. Tónleikarnir á mánudag voru þeir fyrstu af sextán sem Dion verður með í september og október og eru þúsundir aðdáenda komin til Parísar til þess að upplifa Celine á tónleikum - ein þeirra heitir Fanney Birna Jónsdóttir og hún var á línunni beint frá París.

Ný skýrsla Fjarskiptastofu um útfösun 2G og 3G farsímakerfanna hefur verið birt. Þar kemur fram að verkefnið hafi í meginatriðum gengið vel, þótt ýmsar áskoranir hafi komið upp á leiðinni, meðal annars varðandi tengingar ákveðinna símtækja við neyðarnúmerið 112. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, kom til okkar og fór yfir helstu niðurstöður skýrslunnar, lærdóminn af verkefninu og næstu skref í þróun fjarskiptainnviða á Íslandi.

Fjölmiðlamaðurinn og smiðurinn knái Gulli Helga er að senda frá sér enn eina þáttaröðina af Gulli Byggir þar sem hann fylgir húsbyggjendum eftir innanlands og utan í litlum og stórum verkefnum og gerir þeim góð skil í þáttunum. Gulli sagði okkur frá nýju þáttunum og viðfangsefnum þeirra.

Það er stór helgi fram undan í íslenskri knattspyrnu, mörg augu beinast að Laugardalsvelli þar sem Þróttur og Fylkir bítast um sæti í Bestu deild karla á morgun laugardag, Víkingar geta varið Íslandsmeistaratitilinn í sömu deild á morgun auk þess sem spennan er mikil á botninum sem og toppnum í úrslitakeppni í deildum karla og kvenna. Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net rýndi í stöðuna með okkur.

Á dögunum kom út á vegum Hins íslenska bókmenntafélags bók um störf arkitektsins Sigvalda Thordarsonar. Sigvaldi er mögulega einn þekktasti arkitekt landsins og hin svokölluðu Sigvaldahús afar eftirsótt þegar þau eru auglýst til sölu. Í bókinni rekur Albína Thordarson arkitekt sögu föður síns og verka hans eins og hún sjálf upplifði hana en bókina vann Albína með kollega sínum Pétri H. Ármannssyni sem ritar aðfaraorð og kafla um náms- og mótunarár Sigvalda. Pétur heimsótti Síðdegisútvarpið og sagði okkur af Sigvalda Thordarsyni.

Undir lok þáttar ráku inn nefið þeir Gísli Marteinn Baldursson sem sneri aftur á skjáinn þetta kvöld með Vikuna og Ingvar Þór Björnsson sem stýrir Vikulokunum á laugardögum undir hádegið. Þeir sögðu frá efnistökum þátta sinna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,