Síðdegisútvarpið

Stuldur á eggjum og ungum, golfsprenging á Íslandi og Hrefna Sætran

Íslandsmótið í holukeppni í golfi fer fram dagana 19.–21. júní. Karlarnir leika á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja og konurnar á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Fyrsti keppnisdagurinn er 36 holu höggleikur og honum loknum komast 16 efstu kylfingarnir í hvorum flokki áfram í holukeppnina. Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands kom til okkar. Við ræddum við hann um Íslandsmótið, aukinn áhuga landsmanna á golfíþróttinni og ekki síst Gunnlaug Árna Sveinsson sem skrifar golfsöguna með því vera fyrsti íslenski karlkeppandinn til keppa á PGA-mótaröðinni sem hófst í dag.

Lögreglan á Austurlandi handtók í síðustu viku par sem var á leið úr landi með fimm lifandi hrossagauksunga og ríflega hundrað egg villtra íslenskra fugla. Austurfrétt greindi frá málinu í morgun en í umfjölluninni kom fram góssið hefði meðal annars verið geymt í sérútbúnum hitatöskum. Hálfdán Helgi Helgason, fuglavistfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands og Náttúrufræðistofnun, aðstoðaði lögreglu við greina eggin. Hann var á línunni.

Hinir árlegu Bíladagar fara fram á Akureyri núna um helgina. Reyndar byrjaði hluti af dagskránni í gær, 17. Júní, með glæsilegri bílasýningu. sem veit allt um það sem boðið er uppá á Bíladögum er Jónas Freyr Sigurbjörnsson hjá Bílaklúbbi Akureyrar. Hann var á línunni.

Hjálpræðisherinn varð loka frískáp þar sem hópur fólks hefur setið um matinn sem þangað var settur. Vísir greindir frá því fyrr í dag grunur hafi leikið á um hópurinn hafi verið selja matinn áfram. Við ræddum málið við Hannes Bjarnason svæðisforingja Hjálpræðishersins.

Í gær sæmdi forseti Íslands fjórtán einstaklinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Fálkaorðan er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir og er veitt fyrir framúrskarandi framlag til samfélagsins á ólíkum sviðum. Ein þeirra sem hlaut orðuna er Hrefna Sætran, matreiðslumeistari, fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri. Við heyrðum í Hrefnu.

Einar Dagur Brynjarsson, sextán ára Verslingur, lagði af stað hringinn í kringum landið á hjóli í gær til styrktar Barnaspítala Hringsins. Hann ráðgerir ferðalagið muni taka um ellefu daga en mótvindurinn hefur aðeins verið stríða honum. Einar var á línunni í lok þáttar.

Birt

18. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,