Hlaupadrottningin Karlotta Ósk Óskarsdóttir er nú stödd í Sofíu í Búlgaríu til að taka þátt í 10 daga hlaupi en enginn íslendingur hefur tekið þátt í svo löngu hlaupi áður en Karlotta er nú þegar íslandsmethafi í langhlaupi sem er 535 km. Hún hefur þegar slegið eigið íslandsmet í þriggja daga hlaupi þegar hún hljóp 302 km. Þá stefnir Karlotta á að hlaupa alls 800 km á þessum 10 dögum. Við heyrðum í Karlottu.
Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður kom til okkar og færði okkur nýjustu tíðindi af Hantaveirunni þ.e. hvað er nákvæmlega að gera í þeim málumá heimsvísu
Í gær kynnti símafyrirtækið Nova dótturfélag Nova klúbbsins, Kosmos sem er fyrsta farsímafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína eingöngu á 5G tækni og rafrænum sim-kortum og nýtir sér gervigreind til að bjóða einfalda þjónustu. En hvað er hér um að ræða? Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, kom til okkar.
Ný lög um Menntasjóð námsmanna áttu að bæta stöðu námsmanna og gera kerfið sanngjarnara — en nú virðist sem breytingarnar hafi ekki skilað þeim árangri sem vonast var eftir. Meðal annars hefur verið bent á að vextir námslána hafi hækkað verulega eftir að Menntasjóðurinn tók við af LÍN. Við ræddum þetta við Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Evrópsku minjaverndarverðlaunin, Europa Nostra Awards, eru virtustu verðlaun Evrópu á sviði menningararfs - og í ár fer ein viðurkenningin til Íslands. Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur verðlaun fyrir að varðveita torfhúsaarfinn og miðla þessari gömlu handverkshefð áfram. Og það má eiginlega líkja þessu við Eurovision minjaverndarinnar. Berglind Þorsteinsdóttir er safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og við heyrðum í henni.
Það hefur verið kalt í veðri að undanförnu og vorið virðist ætla að láta bíða eftir sér. Við veltum því fyrir okkur hvort trjágróðri verði meint af í slíkum kulda og hvað þá þegar snjóar - Vilmundur Hanssen garðyrkjufræðingur leit við hjá okkur.