Samtök leigjenda á Íslandi velta fyrir sér fyrir hverja er verið að byggja á Íslandi. Fjárfestar kaupa nýbyggðar íbúðir í stórum stíl og segja samtökin þetta vera skýrasta birtingarmynd þess að hér þarf alvarlega að endurskoða stjórnleysi í verðlagningu leiguíbúða. Á meðan dæli skattgreiðendur 11 milljörðum króna á ári í húsaleigubætur til að fóðra enn frekar fjárfestanna. Yngvi Ómar Sigrúnarson er formaður Samtaka leigjenda. Hann kom til okkar.
Það er ekki nýtt að talað sé um að Ísland sem dýrt land að heimsækja. Nýlega fór af stað lífleg umræða á netinu nánar tiltekið á X þar sem haldið var fram að hér á landi væri nánast búið að fullkomna listina að tæma veski ríkra ferðamanna – og sögurnar sem fylgdu voru allt frá dýrum bílastæðum upp í ansi kostnaðarsamar máltíðir. En hvað segir ferðaþjónustan sjálf? Pétur Óskarsson Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og framkvæmdastjóri Katla DMI ehf. kom til okkar í dag og ræddi þessi mál.
NBA stjörnur verða á vappi í Egilshöll í ágúst í sumar. Ástæðan er þátttaka þeirra í Elite Camp-æfingabúðum sem verða í þar dagana 5. til 9. ágúst nk. og eru fyrir aldurshópinn 7 til 17 ára. Björn Baldvinsson, einn þeirra sem kemur að þessum æfingabúðum, kom til okkar.
Spennan heldur áfram að stigmagnast í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætluðu að byrja að fylgja skipum um Hormússund. Það fer nú tvennum sögum af því hvernig það gengur – hvort skip séu komin í gegn og hvort Írönum hafi tekist að hæfa bandarískt herskip. Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, kom til okkar og fór yfir stöðunaeins eins og hún er í dag.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026 hófst þann 17. apríl 2026. Við fengum til okkar í dag sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu Sigríði Kristinsdóttur og förum yfir skipulagið, hvað eru margir búnir að kjósa og allt það helsta sem tengist kosningu utan kjörfundar.
Tveir sænskir táningspiltar eru grunaðir um að hafa skotið tvo til bana í síðasta mánuði, annars vegar í Ósló og hins vegar í Norrköping. Lögreglan telur að ódæðin hafi verið framin að pöntun undirheimanna - eða það sem kallast “crime as a service”. Slík mál eru að verða sífellt meira áberandi í Skandinavíu og hafa þarlendir miðlar fjallað ítarlega um þá þróun - en á Íslandi er það Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins sem hefur fjallað hvað mest um þessi mál. Við heyrðum í Atla.