Síðdegisútvarpið

Verkalýðsmál, umferðin í höfuðborginni, Hönnunarmars og maraþonhlaup

Eins og undanfarna daga þá fylgdum við fréttastofunni sem heldur utan um Oddvitaumræður í útvarpi og sjónvarpi og í kvöld eru það Skagafjörður og Grindavík. Við ætlum heyra í íbúa á Sauðárkróki hann heitir Áskell Heiðar Ásgeirsson er fjögurra barna faðir og kennari og við spyrjum hann út í lífið og tilveruna í Skagafirði.

HönnunarMars hefst í næstu viku. Til segja okkur nánar frá dagskránni kom til okkar Gunnþórunn Jónsdóttir kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

Frumvarp um breytingar á umferðarlögum sem varðar eldri ökumenn og þeir þurfi ekki endurnýja ökuskírteini sín jafn oft og núgildandi lög kveða á um er til umfjöllunar á Alþingi. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, fer fyrir hópi þingmanna sem standa fyrir frumvarpinu. Nanna Margrét, kom til okkar.

Til skilja mikilvægi þess einhver hlaupi maraþon á innan við tveimur klukkustundum þarftu líka skilja þar til nýlega var hugmyndin um þetta gerðist í raun og veru algjörlega fáránleg. Sumir höfðu spáð þetta myndi ekki gerast fyrr en í fyrsta lagi 2075 og það þótti bratt. En þetta varð veruleika um daginn þegar Sabastian Sawe, kenískur hlaupari, hljóp maraþon á 1 klst 59 mínútum og 30 sekúndum . Marteinn Urbancic, sem heldur úti hlaðvarpi um hlaup skoðaði þetta afrek með okkur.

Á morgun er 1. maí, dagur verkalýðsins, og af því tilefni ræddum við stöðu launafólks á tímum mikilla efnahagsbreytinga. Kjarasamningar, þrálát verðbólga og stýrivaxtahækkanir hafa sett mark sitt á heimilin, á sama tíma og íbúðaverð hefur hækkað verulega þróun sem margir finna skýrt fyrir í eigin buddu.Til fara yfir stöðuna og hvað fram undan fengum við til okkar Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, og Vilhjálm Birgisson formann Starfsgreinasambandsins.

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu var til umræðu á fundi fyrr í vikunni, þar sem bent var á hinn dæmigerði borgarbúi gæti varið allt 92 klukkustundum á ári fastur í umferð sem jafngildir rúmum tveimur vinnuvikum.Fundurinn, Greiðari leið hugmyndir óskast!, beindi sjónum þróun vandans og mögulegum lausnum frá ólíkum sjónarhornum Við ræddum helstu atriði sem þarna komu fram við Konráð S. Guðjónsson sem var einn frummælanda.

Birt

30. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,