Síðdegisútvarpið

Unnar kjötvörur, Elliðaarnar, og Ragnar Þór og málefni leigjenda

Við byrjuðum í Mosfellsbænum í tilefni af væntanlegum sveitarstjórnarkosningum. Við fórum í heimsókn til Hönnu Símonardóttur, sem hefur verið lýst sem ofurfótboltamamma og athafnakona en hún hefur verið ötull sjálfboðaliði í tugi ára og unnið gott og mikilvægt starf fyrir Aftureldingu. Það eru fáir sem þekkja samfélagið í Mosfellsbæ betur en hún. Síðan heyrðum við í Mosfellingum á förnum vegi - fengum vita hvað það er sem brennur á þeim fyrir kosningarnar.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur kynnt aðgerðir sem ætlað er styrkja stöðu leigjenda og bæta réttarstöðu þeirra á leigumarkaði. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu. Ragnar Þór kom til okkar.

Skeggfjelag Reykjavíkur og nágrennis ætlaði vera með Íslandsmeistaramótið í skeggvexti á laugardaginn en því hefur verið frestað fram á haust vegna dræmrar þátttöku. Jón Baldur Bogason, er yfirumsjónarmaður Skeggfjelag Reykjavíkur og nágrennis. Hann ræddi við okkur um keppnina og skeggtískuna í dag almennt.

Í Spánarspjalli gærdagsins við Jóhann Hlíðar kom fram á hverju ári koma út um 90.000 nýir bókatitlar á Spáni sem telst harla gott eða 80 nýjar bækur á dag, Þrátt fyrir þetta mikla magn selst um helmingur þeirra lítið eða ekkert. Er þetta merki um harða samkeppni ? Er verið gefa út of margar bækur eða eru bókaforlögin leggja of mikla áherslu á magn en ekki gæði ? Og hvernig er þessu háttað hér á landi ? Við heyrðum í Ásmundi Helgasyni, bókaútgefanda hjá Drápu og fengum hans sýn á stöðuna.

Málefni Elliðaánna eru í brennidepli en annað kvöld, fimmtudag, verður haldinn opinn fundur þar sem frambjóðendur í borginni verða spurðir út í verndun svæðisins og framtíð þess. Áhyggjur snúa meðal annars aukinni uppbyggingu og fjölgun ferðamanna í Elliðaárdalnum og hvort það samræmist verndun einnar mikilvægustu náttúruperlu borgarinnar. Við ræddum þetta við Hrannar Pétursson varaformann stjórnar SVFR og Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðing.

Unnar kjötvörur verða ekki á boðstólum í leik- og grunnskólum Reykjavíkur samkvæmt nýrri matarstefnu sem samþykkt var á borgarstjórnarfundi í vikunni. Stefnunni er ætlað tryggja aðgengi hollum mat óháð efnahag. Markmiðið er bæta mataræði barna en um leið vakna spurningar um næringu, áhrif og hvort þetta raunhæft í framkvæmd. Við ræddum þetta við Annu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands.

Birt

15. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,