Síðdegisútvarpið

Suðurlandsbraut og Borgarlínan, Verktakalán í augum Ragnars ráðherra og Karl Ágúst Úlfsson

Tillaga deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut er komið í auglýsingu. Skipulagssvæðið nær utan um breytta götumynd Suðurlandsbrautar milli Skeiðarvogar og Lágmúla. Fjölmargir hafa tjáð sig um tillöguna á samfélagsmiðlum og lýst ekkert á blikuna. Fækka eigi akgreinum fyrir akandi úr fjórum niður í tvær. þegar er Suðurlandsbrautinn þétt setin á álagstímum. Við fórum yfir málið með Guðbjörgu Lilju Erlendsdóttur samgöngustjóra Reykjavíkurborgar.

Í vikunni var gestur okkar Ásdís Ósk Valsdóttir, fasteignasali, sem lýsti áhyggjum sínum af svokölluðum verktakalánum sem kaupendum bjóðast til létta kaupin á nýjum íbúðum í eigu verktakanna. Hún segir þetta minna sig á lánamál fyrir hrun og geldur varhug við þeim. Hún vill stjórnvöld skoði málið betur og kallar eftir viðbrögðum þaðan. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðisráðherra, var gestur okkar í dag.

Félag akademískra starfsmanna lýsti yfir vantrausti á rektor Háskólans á Bifröst eftir fræðigreinar starfsmanna voru athugaðar með gervigreind. Stjórn skólans ætlar skipa utanaðkomandi sáttamiðlara en treystir rektor til stýra áfram. En um hvað snýst málið. Sigrún Lilja Einarsdóttir, er í stjórn FAB sem er Félag akademískra starfsmanna, fór yfir málið með okkur.

Flugmálayfirvöld rannsaka atvik þar sem flugmaður farþegaþotu SAS á leið frá Brussel til Kaupmannahafnar í gær hætti við flugtak því hún reyndist á samhliða akbraut í stað úthlutaðrar flugbrautar. Þotan, Airbus A320neo, var á næstum tvö hundruð kílómetra hraða þegar hætt var við flugtak. Níu Íslendingar voru um borð í þotunni og ein þeirra Sólrún Kristjánsdóttir forstjóri Veitna sagði okkur frá þessari lífsreynslu í dag.

Fyrir 40 árum sagði Morgunblaðið frá því 30 þúsund manns höfðu séð Löggulíf. Þjóðin fékk bara ekki nóg af Þór og Danna sem þeir Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson lékur svo eftirminnilega í kvikmyndunum sem komu á undan, Nýju Lífi og Dalalífi. Og þá fylgir sögunni í fyrsta skipti var hægt borga bíómiða með greiðslukorti á þessum tíma. Karl Ágúst var föstudagsgestur okkur og ætlar rifja upp þennan tíma með okkur.

Víkurskóli fyrstur skóla á Íslandi til hljóta svefnvottun - Þuríður Óttarsdóttir skólastjóri ræddi við okkur.

Birt

6. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,