Eitt elsta og óupplýsta morðmál Frakklands er tekið fyrir í dag en í dag hófust réttarhöld yfir Pascal Lafolie tæplega sextugum Frakka sem er grunaður um morð fyrir rúmum þrjátíu árum síðan. Til okkar kom Markús Þórhallsson fréttamaður.
Breytingar á gatnamótum við Höfðabakka hafa verið í umræðunni upp á síðkastið en lokun beygjuakreinar á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls hefur leitt af sér stórauknar umferðatafir á gatnamótunum og í austurhluta borgarinnar. Formaður íbúasamtaka Árbæjar segir breytingarnar valda mikilli óánægu meðal íbúa og fyrirtækja í hverfinu. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðust gegn beygjuakreinarnar yrðu fjarlægðar en við fengum til okkar Kjartan Magnússon borgarfulltrúa til að fara yfir málið.
Bókunum og komum skemmtiferðaskipa/farþegaskipa næstu tvö árin hefur fækkað stórlega frá metárinu 2024. Segja má að hrun hafi orðið á bókunum hjá nokkrum minni höfnum landsins. Svo virðist sem óvissuþættir með tolla, komugjöld og fleira valdi því að fækkun verði í bókunum og komum skipanna. Þetta kom fram í minnisblaði Sigurðar Jökuls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Cruise Iceland. Við hringdum í hann .
Áttugasta alsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett í New York í dag. Þema umræðu þingsins er “Betri saman: Í þágu friðar , þróunar og mannréttinda í 80 ár.” Buist er við að Palestína verði í brennidepli en nú hafa stórar þjóðir eins og frakkar og bretar bæst í hóp þeirra þjóða sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Einnig hefur verið ákveðið að leyfa Mahmoud Abbas forseta Palestínu að ávarpa þingið rafrænt. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru ytra og Þorgerður Katrín var á línunni hjá okkur.
Í kvöld verður Gullboltinn, verðlaunin fyrir besta leikmann Evrópu, veittur við hátíðlega athöfn. Lið þess sem þykir líklegastur til hreppa hnossið spilar í kvöld. En hver er það ? Hjörvar Hafliðason Dr. Football ræddi við Síðdegisútvarpið.
Bíllausi dagurinn er í dag og fólk hefur verið hvatt til að skilja einkabílinn eftir heima. Í dag hefur verið frítt í strætó og við heyrðum í Jóhannesi Svavari Rúnarssyni og spurðum hvernig hefði gengið.