Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að spáin fyrir verslunarmannahelgina er, tja, ekki frábær. Alls ekki. En fyrir þær huguðu sálir sem ætla þrátt fyrir allt að skella sér í útilegu í slagviðrinu, hvernig gerir maður það þannig að tjaldið sé kjurrt á sínum stað og án þess að andast úr ofkælingu? Við heyrðum í björgunarsveitakonunni Jóhönnu Guðrúnu Snæfeld Magnúsdóttur um hvernig er best að bera sig að.
Þessa vikuna heyrum við í nokkrum af þeim sem standa að útihátíðum um helgina, já og í þessu tilfelli innihátíð. Eldar Ástþórsson kom til okkar og sagði okkur af Innipúkanum í Reykjavík.
Jóhann Hlíðar Harðarson, okkar maður á Spáni, sagði okkur í dag af bæjarhátíðum á Spáni og spillingu í spænska þinginu.
Við töluðum um daginn við formann húsfélagsins að Árskógum 1-3, Inga Þór Hafsteinsson, en íbúar mótmæltu þá lagningu göngustíg allt að því inn í stofu hjá íbúum. En nú hefur borgin og húsfélagið náð sáttum. Ingi Þór sagði okkur nánar frá því í hverju þær eru fólgnar.
Heimsmeistaramót íslenska hestsins hefst eftir viku í Birmenstorf í Sviss og íslensku keppnishrossin kvöddu heimahagana í gær þegar þau fóru um borð í flugvél í Keflavík. Hulda Geirsdóttir var á staðnum og fylgdist með.
Og eins og fyrr sagði viðrar ekki vel um verslunarmannahelgina. Að minnsta kosti ekki eins og útlitið er núna. En hvar skildi veðrið verða skárst? Siggi Stormur rýndi í spárnar fyrir okkur.