Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Erla María Markúsdóttir fréttamaður kom til okkar og sagði okkur frá víðtækasta rafmagnsleysi í sögu Spánar. Yfirvöld hafa varað við því að það geti tekið tíu klukkustundir að koma rafmagni alls staðar á aftur.
Bogi Ágústsson les sinn síðasta fréttatíma í sjónvarpinu í kvöld. Logi Bergmann Eiðsson fyrrum samstarfsmaður Boga og vinur ræddi við okkur um kappann.
Við ræddum stóra Meta og gervigreindarmálið sem hefur verið að kollvarpa feisbúkk síðustu daga við Árni Matthíasson og Helgu Þórisdóttir forstjóra Persónuverndar.
Kristinn Þórisson prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík kom og sagði okkur frá nýju meistaranámi í gervigreind.
Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri kom til okkar og ræddi við okkur þá ákvörðun að fella niður tíu fréttatímann og færa kvöldfréttir til klukkan átta á kvöldin.
Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri sagði okkur frá Moulin Rouge söngleiknum sem verið er að setja upp í Borgarleikhúsinu.