Síðdegisútvarpið

Normalísering á neyslu áfengis, afdrif vistheimilisbarna, Afríkukeppnin í knattspyrnu, Vagninn auglýsir eftir félagsskap og afmælisbarnið Dolly Parton

Spennan í samskiptum Evrópu og Bandaríkjanna stigmagnast. Trump, forseti Bandaríkjanna segir veröldina ekki örugga nema með algjörum yfirráðum Bandaríkjanna yfir Grænlandi. Þá eru Evrópuríki undirbúa mótaðgerðir gegn tollayfirlýsingum Trumps en þýski fjármálaráðherrann líkti tollunum við fjárkúgun. Í dag var fundað í höfuðstöðvum NATÓ í Brussel vegna þessara mála. Varnarmálaráðherra Danmerkur og utanríkisráðherra Grænlands ræddu við framkvæmdastjóra NATÓ og varnarmálaráðherrar allra Norðurlandanna hittu framkvæmdastjóra NATÓ. Síðdegisútvarpið sló á þráðinn til Björns Malmquist fréttamanns RÚV sem var nýkominn úr strætó við höfuðstöðvar NATÓ þar sem hann freistaði þess tali af ráðafólki sem sat fundina í dag.

Afríkukeppni landsliða í knattspyrnu lauk í gær með úrslitaviðureign Marokkó-manna og Senegala og segja endapunkturinn hafi verið frekar skrautlegur þar sem annað liðið hótaði því ganga af velli og klára ekki leikinn sem eins konar mótmæli gegn óhæfri dómgæslu. Mótið sem fór fram í Marokkó hefur þó farið vel fram og helstu stjörnur Afríkuþjóðanna farið hamförum en þó hefur gengið á ýmsu. Eldar Ástþórsson markaðsstjóri Faxaflóahafna er mikill ástríðumaður þegar kemur knattspyrnu álfunnar og hann sagði hlustendum Síðdegisútvarpsins frá mótinu.

Í morgun hófust Læknadagar í Hörpu og er þétt dagskrá þar alla vikuna. Í dag var þemað áfengisneysla og afleiðingar hennar. Farið var yfir það sem kallast hin falda sjúkdómsbyrði vegna áfengisneyslu, spurt hvort amma og afi eigi hætta drekka og spurt var hvort áfengi trenda. Þetta er bara brot af því sem fjallað var um á Læknadögum í dag en á meðal þeirra sem héldu fyrirlestur í Hörpu voru Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði sem talaði um normalíseringu áfengis í nútímasamfélagi og Sigurdís Haraldsdóttir, krabbameinslæknir á landspítalanum og prófessor við Háskóla Íslands en yfirskrift hennar erindis var: Áfengi og krabbamein frá vísindum til vitundar. Sigurdís og Viðar komu í Síðdegisútvarpið.

Við ræddum einnig um afdrif barna sem voru á vistheimilum en ekki hefur verið skoðað sérstaklega hvernig þeim hefur farnast. Urður Njarðvík, prófessor í barnasálfræði sem var í nefnd sem rannsakaði vöggustofur Thorvaldsensfélagsins sagði slík athugun þyrfti fara fram en afdrif barna sem voru á vöggustofum voru könnuð. Kom í ljós dánartíðni þeirra er umtalsverð hærri en jafnaldra. Þá eru þau líklegri en jafnaldrarnir til glíma við alvarleg veikindi, aðallega geðraskanir. Urður sagðist telja það þyrfti skoða afdrif barna sem voru á örðum vistheimilum. Jón Magg, formaður Samtaka vistheimilabarna ræddi þetta í Síðdegisútvarpinu en hann var sjálfur meðal annars vistaður í Breiðavík á Kumbaravogi og fleiri heimilum þegar hann var barn.

Afmælisbarn dagsins öðrum ólöstuðum var tvímælalaust Dolly Parton sem fagnaði 80 ára afmæli 19. Janúar. Ferill hennar spannar mögulega 70 ár og ekki eingöngu hefur Dolly náða snerta allan heiminn með tónlist sinni, söng og textum heldur er hún marglaga manneskja sem hefur sýnt það hvernig hún heldur með mennskunni og gefið af sér á mörgum vígstöðum. Þannig tók hún t.a.m. öflugan þátt í baráttunni við kórónuveiruna skæðu á sínum tíma og hefur í gegnum tíðina eflt læsi barna með bókaklúbbi sínum og bókagjöfum. Í gegnum bókaklúbbinn kynntist Rakel Mjöll Leifsdóttir, sem sjálf er tónlistarkona, Dolly í fyrstu en hefur fylgt henni síðan og endaði á því skrifa ritgerð um hana í listnámi sínu í Brighton. Við hringdum í Rakel sem ræddi Dolly við okkur í beinni frá Lundúnum.

Vagninn á Flateyri hefur gegnt lykilstöðu í skemmtanamenningu Önfirðinga og Vestfirðinga allra allt frá því þar opnaði sjoppa í fyrsta. snemma á níunda áratug síðustu aldar en segja það algjört skyldustopp allra sem ferðast um norðanverða Vestfirði líta inn á Vagninn. Staðahaldarar hafa ætíð farið ótroðnar slóðir þegar kemur menningar-dagskránni og markaðssetningu staðarins og á dögunum mátti lesa örlitla auglýsingu í einkamáladálki Bændablaðsins þar sem Vagninn auglýsti eftir félagsskap á

laugardögum í vetur. Við hringdum í Vagns-stjórann Sindra Pál Kjartansson og forvitnuðumst um einkamál þeirra á Vagninum.

Frumflutt

19. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,