Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld og stefnt er að þinglokum fyrir helgi þó mögulega þurfi fleiri daga. Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður kom í Síðdegisútvarpið í dag og fór yfir stöðuna.
Kennarar á Íslandi muna vart eftir þeim tíma þegar hér ríkti ekki námsgagnaskortur. Stjórnvöld hafa lofað úrbótum í mörg ár en ekkert gerist. Í dag er staðan orðin svo alvarleg að fjármagnið sem úthlutað er til námsgagna dugir varla til að prenta út pdf-skjölin sem kennarar hafa búið til. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, kom til okkar.
Er óhætt að tína og borða krækling þegar „r“ er nafni mánaðarins? Sú gamla regla segir ekki alla söguna. Þörungaeitur í skelfiski getur verið til staðar langt fram á vetur og jafnvel yfir sumarið. Í þættinum í dag heyrðum við í Ingibjörgu Jónsdóttur fagsviðsstjóra Skeldýrasviðs hjá Matvælastofnun sem fer yfir áhættuna, eftirlitið og það sem skeljatínslufólk þarf að hafa í huga.
Aukin umsvif rússneska hersins skammt frá landamærum Rússlands að Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum vekur ugg í brjósti Evrópubúa. Sameiginleg rannsókn ríkismiðla Svíþjóðar, Danmerkur og Noregs, og eistneska miðilsins Delfi, varpar ljósi á hvernig Rússar hafa byggt upp og stækkað herstöðvar, reist herbúðir og verkstæði, og komið þar fyrir hergögnum. Varnar- og utanríkisráðherrar Norðurlandanna segjast líta málið alvarlegum augum. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var á línunni.
Óeirðir hafa brotist út í Belfast á Norður-Írlandi í kjölfar hrottafenginnar árásar hælisleitanda frá Súdan á írskan mann á mánudagskvöldið. Maðurinn liggur þungt haldinn á spítala, hann missti vinstra augað í árásinni og hið hægra er alvarlega skaddað. Myndskeið af atvikinu, sem hefur verið í dreifingu, sýnir árásarmanninn sitja yfir blóðugu fórnalambi sínu og munda hníf á hálsi þess. Mikil reiði hefur blossað upp í borginni, óeirðaseggir hafa kveikt í húsum og voru íbúar sendir snemma heim úr vinnu og skóla í dag vegna ástandsins. Erla Dögg Stefánsdóttir býr í Belfast og sagði okkur frá því helsta sem þar er í gangi.
Nýlega var tilkynnt um komu dagvöruverslana SPAR til Íslands en keðjan sem var stofnuð árið 1932 er með yfir 13,800 verslanir starfandi í 48 löndum í fjórum heimsálfum. En hvernig munu íslenskir neytendur hagnast á komu Spar til landsins? Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Spar á Íslandi, Krambúða og 10-11 kom til okkar í lok þáttar.