Katrín föstudagsgestur og ferðalög til annarra landa heima
Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra og nú framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, hlaut í vikunni spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir bókina Sykur. Bókin er fyrsta skáldsaga Katrínar, en verðlaunin eru einmitt ætluð höfundum sem hafa ekki áður sent frá sér glæpasögu. Katrín var föstudagsgesturinn okkar í dag.
Við veltum upp nokkrum hugmyndum að skemmtilegu fjölskyldukvöldi í matarspjalli dagsins, svona fyrir helgina. Guðrún, Gunnar og Sigurlaug komu með hugmynd sem er kannski stolin og ekkert sérlega frumleg en gæti stuðlað að kærkominni tilbreytingu fyrir helgina. Við tókum viðtal í fyrra við unga konu, Ingu Ágústs, sem birti yfir langan tíma matarmyndir á Instagram, þar sem hún tók fyrir eitt land í einu og fann út hvaða matur væri dæmigerður fyrir land og þjóð. Börnin hennar tóku þátt í þessu og úr varð tilbreyting í kvöldmatnum. Við útfærðum þetta aðeins, meira um það í þættinum.