Mannlegi þátturinn

ADHD fullorðinna, vinkill um forréttindablindu og Margrét lesandinn

Við fræddumst í dag um bókina ADHD fullorðinna. Bókin varpar ljósi á ADHD eins og það kemur fram á fullorðinsárum. Farið er yfir lykileinkenni og orsakir ADHD, þróun einkenna yfir æviskeiðið, birtingarmyndir og mögulega fylgikvilla, eins og kvíða og þunglyndi. Fjallað er um greiningarferli, meðhöndlun og helstu styrkleika sem fylgt geta því vera með ADHD. Eins er greint frá leiðum til bæta skipulag, einbeitingu, tímastjórn og minni, sem og aðferðum til draga úr frestun. Höfundar bókarinnar, Sóley Dröfn Davíðsdóttir og Bára Sif Ómarsdóttir, sálfræðingar hjá Kvíðameðferðarstöðinni, komu í þáttinn í dag og sögðu betur frá.

Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fjallar um hugtakið forréttindablindu og það er mátað við ýmislegt í tilveru pistlahöfundar, sem ákvað upp úr leiða fara einn í ferðalag upp í Þjórsárdal til hreinsa hugann; í vondu veðri og gista í skóginum, auk þess sem lítil upprunasaga ófærubifreiðar hans fléttast inn í frásögnina.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Margrét Helga Erlingsdóttir fréttamaður og fréttaþulur á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni. Við fengum vita hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Margrét talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Kletturinn e. Sverri Norland

Náttúrulögmálin e. Eirík Örn Norðdal

Seek you A Journey Through American Loneliness e. Kirsten Radke

Moments of Being e. Virginia Wolf

Tónlist í þættinum:

Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)

You don’t have to say you love me / Dusty Springfield (Pino Donaggio & Vito Pallavicini)

Darling be Home Soon / Lovin Spoonful (John B. Sebastian)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Frumflutt

8. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,