• 00:05:40Gunnar Helgason - föstudagsgestur
  • 00:22:40Gunnar Helgason - seinni hluti
  • 00:41:00Matarspjallið - að borða utandyra eða ekki

Mannlegi þátturinn

Gunnar Helgason föstudagsgestur og matarspjall um útimáltíðir

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, rithöfundurinn og leikstjórinn Gunnar Helgason. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar úr Hvassaleytinu í Vogahverfið, hvar hann eyddi öllum stundum í fótbolta eða á skíðum. Hvenær leiklistin kom inn í líf hans og svo bókaskrifin og leikstjórnin, en Gunnar hefur leikstýrt leiksýningum víða um lönd og skrifað um þrjátíu bækur. síðast var hann auglýsa á samfélagsmiðlum eftir frægum „Bo“-frösum sem verða notaðir á minningartónleikum um Björgvin Halldórsson í haust.

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag veltum við því fyrir okkur hvort og hvernig er hægt sitja úti, jafnvel heilt kvöld á Íslandi og hvað best borða við slíkar aðstæður?

Tónlistin í þættinum:

Óbyggðirnar kalla / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)

Hringd’í mömmu / Stefán Hilmarsson (Yeary, Mille & Green, texti Stefán Hilmarsson)

Póstnúmer / Flott (feat.KR!$$!) (Vigdís Hafliðadóttir og Regnhildur Veigarsdóttir, texti Vigdís Hafliðadóttir og Arnór Björnsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

26. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,